Songtexte.com Drucklogo

Bak við veggi martaðar Songtext
von Bubbi Morthens

Bak við veggi martaðar Songtext

Ég vaknaði um óttu við uggvænan draum
óm af röddum heyrði ég berast.
Ég kafaði vökunnar kalda straum
Og kallaði: Hvað er að gerast?
Bak við veggi martraðir myndin af þér lifir
Margoft hef ég gullið mitt reynt að komast yfir.
Þú efar sjálf þær sögur enn
Að sagan geymi svo vonda menn.
Sem ástina blekkja og sólina særa
Systir margt þarft þú enn að læra.
Bak við veggi martraðir myndin af þér lifir
Margoft hef ég gullið mitt reynt að komast yfir.


Býr í djúpi borgaróttinn
Bæli á í augum manna.
Sem bíða þess að bilsvört nóttin
Bryðji þá á milli tanna.
Bak við veggi martraðir myndin af þér lifir
Margoft hef ég gullið mitt reynt að komast yfir.
Kominn er vetur milda móðir
Mjöllin hylur gömul spor.
Ástin fýkur um freðnar slóðir
Fölur bíð ég komi aftur vor.
Bak við veggi martraðir myndin af þér lifir
Margoft hef ég gullið mitt reynt að komast yfir.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Wer ist gemeint mit „The King of Pop“?

Fans

»Bak við veggi martaðar« gefällt bisher niemandem.